Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn og fyrrum forsetaframbjóðandi, John McCain, er nú staddur í Egyptalandi ásamt aðilum úr bandarísku viðskiptalífi. Hann lét af því tilefni þau ummæli falla að Bandaríkin væru reiðubúin að fjárfesta í landinu og leggja sitt af mörkum við að stuðla að frelsi, lýðræði og hagvexti.