Dómstóll í Texas dæmdi 55 ára gamlan trúarleiðtoga og fjölkvænismann fyrir misnotkun á tveim börnum. Hafði hann gert tvær ungar stúlkur að brúðum sínum í svokölluðu andlegu hjónabandi.
Warren Jeffs, 55 ára er bókstafstrúarmaður og leiðtogi í kirkju sinni sem aðhyllist fjölkvæni.
Jeffs gæti fengið 119 ára fangelsisdóm fyrir glæp sinn.
Niðurstöður erfðarannsókna sýndu fram á að Jeff hafði barnað 15 ára stúlku og komust lögreglumenn yfir upptöku sem sannaði að Jeffs hafði misnotaði 12 ára stúlku kynferðislega.
Jeffs telur sig vera fórnarlamb trúarlegra ofsókna.
Ellefu menn í trúarsöfnuðinum voru kærðir fyrir kynferðislega misnotkun og tvíkvæni. Sjö þeirra hafa verið sakfelldir og hafa fengið 6 til 75 ára fangelsisdóm.
Sjá frétt á vef The Australian.