Taki slaginn gegn innflytjendum

Á vefsíðu Breska þjóðarflokksins er fullyrt að óeirðirnar eigi rætur …
Á vefsíðu Breska þjóðarflokksins er fullyrt að óeirðirnar eigi rætur í deilum kynþátta. Sökudólgurinn sé Verkamannaflokkurinn og fjölmenningarstefna hans.

Breski þjóðarflokkurinn auglýsir nú eftir nýliðum til að berjast gegn áframhaldandi straumi innflytjenda til Bretlands. Með því að ganga í flokkinn megi ná fram hefndum gegn innflytjendastefnunni. Tilefnið er óeirðirnar í Bretlandi.

„Ekki tryllast: náðu fram hefndum - gakktu í Breska þjóðarflokkinn í dag,“ segir í fyrirsögn á vef flokksins. Segir svo í sömu grein:

„Breski þjóðarflokkurinn er eini flokkurinn sem berst gegn straumi innflytjenda og óeirðunum sem straumnum fylgja á götum okkar. Gakktu í flokkinn í dag og taktu stöðu með okkur í stríðinu sem er háð gegn frumbyggjum þessa lands,“ segir í greininni í lauslegri þýðingu.

Greinina má nálgast hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert