Stuðningsmenn Gaddafis eltir uppi

Uppreisnarmenn leita nú uppi stuðningsmenn Muammars Gaddafi í höfuðborg Líbíu, Trípólí, á sama tíma og Gaddafi hvetur stuðningsmenn sína til að drepa þá vantrúuðu.

Fara uppreisnarmenn nú hús úr húsi í leit að stuðningsmönnum Gaddafis og halda íbúar sig innandyra þar sem skothríð glymur um stræti borgarinnar.

Ekki er vitað hvar Gaddafi heldur sig en hann ávarpaði stuðningsmenn sína í dag og sagði uppreisnarmennina vera vantrúaða, krossfara og rottur. Hvetur hann stuðningsmenn sína til að hreinsa borgina af uppreisnarmönnum. Þeir muni ekki sýna neina miskunn og ekki eigi að sýna þeim neina miskunn á móti. Hvetur hann ungt fólk í borginni til þess að drepa þá hvar sem til þeirra næst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert