Marglyttuinnrás á Kanarí

Enska ströndin á Kanaríeyjum.
Enska ströndin á Kanaríeyjum. mbl.is/GSH

Marglyttur hafa gert innrás við strendur Kanaríeyja, að sögn fréttavefjar Aftenbladet í Noregi. Mörgum baðströndum hefur verið lokað og margir ferðamenn fengið brunasár af völdum marglyttnanna.

Sem kunnugt er flykkjast Norðurlandabúar til Kanaríeyja til að njóta veðurblíðu þar meðan vetur ríkir á norðurslóðum. Marglyttnanna hefur orðið vart við margar vinsælar baðstrendur á eyjunum.

Á sunnudaginn var þurftu margir ferðamenn á Gran Canaria að leita læknis eftir að hafa komist í snertingu við marglyttur og fengið brunasár. Í gær var öllum baðströndum á Lanzarote lokað vegna marglyttuplágunnar.

Alls þurftu 79 manns að leita sér læknishjálpar vegna marglyttubruna. Þeir voru að baða sig í sjónum við Playa del Inglés og Maspalomas. Venjulega þarf fólk ekki að óttast marglyttur við þessar strendur en ástandið var svo slæmt á sunnudaginn var að baðverðir báðu fólk að sleppa því að fara í sjóinn.

Yfirvöld á Lanzarote drógu upp rauða fánann á baðströndum á mánudag og lokuðu baðströndum vegna marglyttuplágunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert