Vara Bandaríkin við hernaði í Sýrlandi

Barack Obama
Barack Obama AFP

Hátt settur íranskur herforingi varaði í dag Bandaríkin við að hlutast til í Sýrlandi. Slíkt myndi hafa alvarlegar afleiðingar. Íranar eru einir af bandamönnum Sýrlendinga fyrir botni Miðjarðarhafs.

Barack Obama Bandaríkjaforseti varaði sýrlensk stjórnvöld við fyrir um ári að notkun efnavopna myndi hafa gríðarlegar afleiðingar fyrir stjórnvöld þar í landi.

Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Chuck Hagel, hefur sagt heri landsins tilbúna til íhlutunar í Sýrlandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka