Skotin á heimili sínu í Belgíu

AFP

Tíu ára drengur og karlmaður á fullorðinsaldri létu lífið og kona ein særðist alvarlega þegar maður vopnaður skotvopni skaut á fólkið á heimili þess í borginni Liege í Belgíu í nótt.

Fólkið var á leiðinni heim þegar maðurinn skaut út um bílgluggann en svo virðist sem hann hafi beðið eftir því, að því er segir í frétt AFP.

Árásarmaðurinn var á bak og burt þegar lögreglu bar að garði. Lögreglan í Liege rannsakar nú málið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert