Allt að fimm aðskilnaðarsinnar, hliðhollir Rússum, voru drepnir í átökum þeirra við úkraínskar hersveitir í bænum Slavíansk í austurhluta Úkraínu nú í morgun. Þá er einn lífshættulega slasaður, að því er segir í frétt AFP.
Aðskilnaðarsinnar hafa lagt undir sig ýmsar opinberar byggingar í bænum að undanförnu í óþökk Úkraínumanna.
Blaðamaður AFP heyrði skothvelli og sá einnig vegartálma aðskilnaðarsinna í ljósum logum. Hann segir að úkraínskar hersveitir hafi nú eyðilagt í það minnsta þrjá vegartálma.
Í nótt lögðu hersveitirnar undir sig ráðhúsið í bænum Mariopol í austurhluta landsins, skammt frá Slavíans, en aðskilnaðarsinnar höfðu haft húsið á valdi sínu.