Reyndi að ræna flugvél á Balí

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. GREG WOOD

Reynt var að ræna flugvél breska flugfélagsins Virgin á flugvellinum á Balí í morgun, að sögn embættismanna í Indónesíu.

Lögreglan sagði við fréttavef Indonesian TV að farþegi um borð í vélinni hefði reynt að komast í stjórnklefa vélarinnar og taka við stjórn hennar. Hann hefur hins vegar verið handtekinn, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins um málið.

Talsmaður indónesísa flughersins sagði við BBC að hermenn hefðu farið um borð í vélina og náð að handtaka farþegann. Flugvélin var nýlent í Balí eftir að hafa flogið frá borginni Brisbane í Ástralíu.

Talsmaður flugfélagsins sagði við Indonesian TV að farþeginn hefði verið drukkinn og að honum hefði jafnframt ekki tekist að ræna vélinni.

Frekari upplýsingar um málið liggja ekki fyrir að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert