Samkvæmt sjúkraliðum á Gaza hafa 24 látist í hernaðaraðgerðum Ísraelshers þar í dag, þar á meðal þrír palestínskir unglingar. Unglingarnir létust eftir að ísraelskur skriðdreki skaut á þá í bænum Beit Hanun í norður Palestínu í morgun.
Jafnframt lést fimm mánaða gamalt barn í árásum ísraelska hersins á borgina Rafah í suðurhluta Gaza fyrr í dag.
Samkvæmt tölum frá mannréttindamiðstöð Palestínu eru almennir borgarar 80% þeirra sem hafa látist í árásum Ísraela síðan þær hófust 8. júlí. Jafnframt hafa að minnsta kosti 1920 Palestínumenn særst í átökunum.
Síðan að aðgerðir Ísraelshers hófust á Gaza hefur að minnsta kosti 1164 eldflaugum verið skotið frá Gaza til Ísrael. Jafnframt hafa 320 eldflaugum verið grandað af eldflaugavarnarkerfi Ísrael, Iron Dome.
Með dauðsföllunum í morgun hafa 265 manns látist í loftárásum Ísraelshers sem staðið hafa nú yfir í 11 daga. Í gærkvöldi hóf herinn landhernað á Gaza og segir hann það vera til þess að svara ítrekuðum flugárásum frá Hamas-samtökunum.
Ísraelskur hermaður lést á Gaza í gærkvöldi og eru þá dauðsföll Ísraelsmanna í átökum síðustu daga orðin tvö.