Nýjar myndir af Georg prins

Vilhjálmur Bretaprins og Katrín hertogaynja, eiginkona hans, hafa birt tvær nýjar fjölskyldumyndir. Tilefnið er eins árs afmæli Georgs litla prins. Myndirnar eru teknar á fiðrildasýningu á náttúrugripasafninu.

Á þeim má sjá Georg litla skoða fiðrildi af forvitni og virðist algjörlega heillaður.

Á laugardag var svo birt þriðja myndin af Georg litla, þar sem hann gengur einn og óstuddur, einmitt í náttúrugripasafninu.

Georg verður eins árs á morgun, þriðjudag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert