Skutu niður tvær úkraínskar orrustuþotur

Rússnesk Sukhoi orrustuþota.
Rússnesk Sukhoi orrustuþota. AFP

Tvær orrustuþotur úkraínska hersins voru skotnar niður yfir austurhluta landsins á svæði sem uppreisnarmenn stjórna. Þetta er haft eftir talsmanni úkraínska hersins.

„Tvær orrustuþotur af gerðinni Sukhoi voru skotnar niður,“ sagði Oleksiy Dmytrashkivsky, talsmaður hersins. „Örlög flugmannanna eru ekki kunn.“

Þoturnar voru skotnar niður nærri bænum Snizhne.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert