Traktor í vopnabúr löggunnar í Wales

Lögreglan í Dyfed-Powys

Lögreglunni í Dyfed-Powys hefur borist ærið sérstakur liðsauki í baráttu sinni gegn landsbyggðarglæpum: dráttarvél með blá ljós og lögreglumerkingum.

Skiljanlega þá er ekki fyrirhugað að nota nýjasta farartæki lögreglunnar til að elta glæpamenn á vegunum. Dráttarvélinni er ætlað að laða fólk á landbúnaðartengda viðburði yfir sumarið.

Dráttarvélin var fengin að láni frá dráttarvélasala á konunglegu velsku landbúnaðarsýningu fyrr í vikunni og segir Tim Daves, yfirmaður innan lögreglunnar, að vonir standi til að fólk muni gefa sig á tal við lögreglumenn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert