Dóttir Castros segist sprelllifandi

Raul Castro, forseti Kúbu.
Raul Castro, forseti Kúbu. AFP

„Ég er sprelllifandi, hress og kát,“ segir Mariela Castro, dóttir Rauls Castros, forseta Kúbu, en flug­vall­ar­yf­ir­völd í borg­inni Ouaga­dougou í Burk­ina Faso sögðu að hún hefði verið um borð í vél Air Algerie sem  hrapaði í Malí í dag.

Flugvöllurinn hafði sett frétt þessa efnis á Facebook-síðu sína, að sögn CNN fréttastofunnar.

Air Algerie hefur gefið út farþegalista vélarinnar. Samkvæmt honum var enginn frá Kúbu um borð.

Mariela hringdi sjálf í fréttamiðil í Venesúela til að leiðrétta fréttina. „Ég er sprellilifandi, hress og kát. Hreinskilnislega skil ég ekki þessa sýningu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert