Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, ræddi símleiðis við Benjamín Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, í kvöld og þrýsti á hann að koma á tafarlausu vopnahléi fyrir botni Miðjarðarhafs til langframa.
Þá fordæmdi forsetinn jafnframt flugskeytaárásir liðsmanna samtakanna Hamas á Ísrael og ítrekaði að ísraelskir borgarar hefðu rétt á því að verja sjálfa sig.
Liðsmenn Hamas héldu árásum sínum áfram í dag, þrátt fyrir að hafa fallist á beiðni Sameinuðu þjóðanna um eins sólarhrings vopnahlé í morgun. Ísraelsher svaraði árásunum af fullum krafti, en nokkrir Palestínumenn féllu í loftárásum hersins í dag.
Í símtalinu við Netanyahu lýsti Obama einnig miklum áhyggjum yfir þróuninni á Gaza-svæðinu. Hann sagði það vera áhyggjuefni að tala látinna færi ört hækkandi dag frá degi. Mikilvægt væri að binda enda á blóðbaðið sem allra fyrst og boða vopnahlé.
1.030 Palestínumenn hafa látið lífið í hernaðaraðgerðum Ísraelshers á Gaza-svæðinu. 43 ísraleskir hermenn hafa fallið í átökunum og tveir óbreyttir, ísraelskir borgarar. Á morgun verða þrjár vikur liðnar síðan her ísraleskra stjórnvalda lét fyrst til skarar skríða á Vesturbakkanum.