Fara að flaki MH17

Frá brotlendingarstað vélar Malaysia Airlines, flugleið MH17, á engi nærri …
Frá brotlendingarstað vélar Malaysia Airlines, flugleið MH17, á engi nærri þorpinu Grabove, í Donetsk-héraði. AFP

Hollenskir og ástralskir lögreglumenn fara í dag að staðnum þar sem brak flugvélarinnar MH17 er að finna. Ætla þeir að gera tilraun til að rannsaka svæðið. Átök hafa verið á svæðinu milli aðskilnaðarsinna og úkraínskra hermanna.

Í gær var greint frá því að hollenskir sérfræðingar hefðu hætt við frekari rannsóknir á svæðinu. „Á meðan átök­in geisa get­um við ekki tekið þessa áhættu. Örygg­is­ráðstaf­an­ir á svæðinu eru al­gjör­lega óviðun­andi,“ sagði Al­ex­and­er Hug hjá Örygg­is- og sam­vinnu­stofn­un Evr­ópu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert