Kramdist til dauða í lyftugöngum

AFP

Lögreglan í New York segir að karlmaður um tvítugt hafi kramist til dauða á milli lyftu og veggjar í fjölbýlishúsi í Bronx-hverfinu.

Lögreglumenn fengu tilkynningu um málið í nótt. Þeir fundu manninn fljótlega í lyftugöngunum, kraminn á milli lyftunnar og veggjar á 18. hæð hússins.

Slökkviliðsmönnum tókst að ná manninum úr lyftugöngunum en hann var úrskurðaður látinn á staðnum. 

Ekki er ljóst hvers vegna maðurinn var í lyftugöngunum, segir í frétt NBC um málið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert