Krefst þess að konan fái lyfið

Læknirinn Kent Brantly að störfum í Líberíu.
Læknirinn Kent Brantly að störfum í Líberíu. AFP

Bandarískur læknir, sem sýktur er af ebóla-vírusnum, krefst þess að hjúkrunarfræðingur fái eina skammtinn sem til er af tilraunalyfi gegn sjúkdómnum. Hjúkrunarfræðingurinn, sem einnig er bandarískur, sýktist einnig af sjúkdómnum og liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi í Líberíu. 

Kent Brantly og trúboðinn og hjúkrunarfræðingurinn Nancy Writebole eru bæði alvarlega veik en ástand þeirra er þó sagt stöðugt. Í nótt hrakaði Brantly þó töluvert, að því er fram kemur í frétt Sky-sjónvarpsstöðvarinnar um málið. Þau liggja bæði á sjúkrahúsi í Líberíu.

Trúboðasamtökin sem Writebole starfar fyrir segja í yfirlýsingu að í gær hafi tilraunalyfið komið til Líberíu. Það hafi þó aðeins dugað fyrir eina manneskju. „Brantly bað um að Nancy Writebol fengi lyfið.“

Í yfirlýsingu samtakanna segir einnig að Brantly, sem er 33 ára, hafi fengið blóð úr fjórtán ára dreng sem læknaðist, þrátt fyrir að hafa sýkst af ebólu. Brantly bjargaði lífi þess drengs. 

Ebólu-faraldurinn sem nú geysar í Vestur-Afríku er sá skæðasti frá upphafi. Um 1.300 manns hafa sýkst og 729 hafa látist.

Ebólu-far­ald­ur­inn hófst í Gín­eu í fe­brú­ar en geis­ar nú einnig í Líb­eríu og Síerra Leóne, þar sem stjórn­völd hafa nú lýst yfir neyðarástandi. 

Sam­tök­in Lækn­ar án landa­mæra segja að far­ald­ur­inn eigi aðeins eft­ir að versna, enda vanti alla yf­ir­sýn um út­breiðslu hans. Frá þess­um lönd­um eru nokkr­ar flug­ferðir í hverri viku til Evr­ópu­land­anna Belg­íu, Frakk­lands og Bret­lands, auk Afr­íkulanda eins og Senegal, Gh­ana og Fíla­beins­strand­ar.

Engu að síður hafa Alþjóðaheil­brigðismála­stofn­un­in og Sótt­varna­stofn­un Evr­ópu­sam­bands­ins ekki mælt gegn ferðalög­um til Vest­ur-Afr­íkulanda, enda er smit­hætta ferðamanna tal­in hverf­andi lít­il, að sögn Land­læknisembætt­is­ins.

Hin banvæna ebóla er sú veira sem er hvað hættulegust …
Hin banvæna ebóla er sú veira sem er hvað hættulegust manninum. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert