Faðirinn birti myndskeið af Ashya

Ashya King.
Ashya King. Breska lögreglan á Twitter

Brett King, faðir Ashya King, hefur birt myndskeið á netinu þar sem hann heldur á syni sínum. Foreldrar drengsins voru handteknir í gær á Malaga á Spáni, en þeir fóru með Ashya af spítala í Bretlandi í síðustu viku. Ashya gekkst undir aðgerð fyrir skömmu, en hann er með heilaæxli. Hann hefur nú verið fluttur á sjúkrahús á Spáni.

Í myndskeiðinu, sem er um 10 mínútna langt, ver Ashya King þá ákvörðun sína að taka barnið af spítalanum í Southampton. Hann segir að fjölskyldan vilji að Ashya gangist undir meðferð sem ekki hafi verið í boði í Southampton.

King segir að syni sínum líði vel og hann fái næringu. Hann bað um að „þetta fáránlega mál“ fengi eðlilega meðferð.

King segist hafa beðið lækna um annars konar meðferð, sem hann segist hafa trú á að lækni son sinn, en þeir hafi sagt að það hefði engan tilgang að láta hann gangast undir hana. Þess vegna hafi hann tekið þá ákvörðun að flýja með barnið til Spánar.

Ashya fannst á Spáni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert