Nauðgarar fengu bara viðvörun

Fórnarlömb nauðgaranna í Rotherham voru flestar kornungar stúlkur og börn …
Fórnarlömb nauðgaranna í Rotherham voru flestar kornungar stúlkur og börn allt niður í ellefu ára úr röðum innflytjenda og afkomenda þeirra. Glæpamennirnir eiga nær allir rætur að rekja til Pakistan eða Kasmír.

Yfirvöld í Rotherham hafa brugðist, hundsað skýrslur um grimmdarverk gegn ungum stúlkum af hálfu ungra innflytjenda eða afkomenda þeirra. Hræðsla við á fá á sig rasistastimpil virðist hafa verið hemill á vinnu sumra embættismanna.

Lýsingarnar eru svo hroðalegar að þær minna helst á atburði í stríðshrjáðum löndum þriðja heimsins. Ungar stúlkur, alveg niður í 11 ára aldur, voru á 16 ára tímabili sem rannsakað var, notaðar kynferðislega af um 50 manna hópi. Þeim var nauðgað af fjölda manna, rænt, þær seldar mansali til annarra hluta landsins. Og að sjálfsögðu voru þær líka barðar og sættu hótunum.

Dæmi voru um að „hellt væri bensíni yfir börn og hótað að kveikja í þeim, þeim hótað með byssum, þau þvinguð til að verða vitni að mjög grófum og ofbeldisfullum nauðgunum og sagt að þau yrðu næst ef þau segðu einhverjum frá þessu,“ segir í nýrri skýrslu um málið.

En staðurinn var Rotherham, lítil og friðsæl borg í norðanverðu Englandi. Málið skekur nú Bretland, að nokkru leyti vegna þess að það kemur í kjölfar dæmalaust ógeðfelldra mála sem ljóstrað var upp eftir andlát sjónvarpsstjörnunnar Jimmy Savile. Þjóðin var varla búin að jafna sig á þeim ósköpum. Og aftur er það þöggunin sem veldur reiði og sorg, þöggun í gegnum mörg ár af hálfu ábyrgra aðila sem annaðhvort vissu betur eða höfðu a.m.k. kosti grun.

Áður höfðu þrisvar verið gerðar skýrslur þar sem bent var á að pottur væri brotinn í barnavernd í Rotherham. En lögreglumenn og liðsmenn CSC, barnaverndareftirlits Rotherham, töldu að um ýkjur væri að ræða í þeirri fyrstu, ekkert að marka tölurnar. Hinar tvær voru einfaldlega hundsaðar. Virtur prófessor úr röðum kvenna, Alexis Jay, fór fyrir nefnd sem skilaði fyrir skömmu nýrri skýrslu um málið að beiðni borgarstjórnar. Jay segir að það sé varfærnislegt mat að fórnarlömbin á tímabilinu 1997-2013 séu um 1.400, þau gætu verið mun fleiri.

Í skýrslu Jay er hörð gagnrýni á stjórnkerfi Rotherham. Lögreglan og ráðamenn barnaverndarmála hafi lagt ofuráherslu á að afsanna fullyrðingar þeirra sem kærðu brotamennina en ekki skráð málin einfaldlega sem hugsanleg brot er þyrfti að rannsaka.

Nær allir glæpamennirnir eru af pakistönskum uppruna eða rekja ættir sínar til Kasmír. Vakið hefur athygli að sumir starfsmenn félagsþjónustu segjast hafa hikað við að taka á málinu vegna þess að um var að ræða þjóðarbrot og þar að auki múslíma. Þeir hafi óttast að fá á sig rasistastimpil. Skilaboðin frá æðstu yfirmönnum hafi ekki alltaf verið skýr í þessum efnum. Margir því valið þá leið að gera sem minnst til að verja börnin, láta lítið fyrir sér fara.

Pólitísk rétthugsun og „tillitssemi“ við minnihlutahóp, múslíma frá Pakistan, virðist hafa átt þátt í að mannréttindi fjölda barna voru fótum troðin. Þess má geta að víða í umfjöllun yfirvalda og sumra fjölmiðla er enn sagt að um sé að ræða fólk af „asískum“ uppruna. Notað er óljóst veigrunarorð sem getur auðvitað þýtt fólk frá Kína, Filippseyjum eða Víetnam engu síður en Pakistan, Indlandi eða Bangladess.

Sátu fyrir stúlkunum við skólana

Vitað er að stundum sátu ungu mennirnir fyrir stúlkum fyrir utan skóla og lokkuðu þær upp í bíl, þannig tókst þeim að ná tangarhaldi á þeim. En í skýrslu Jay kemur einnig fram að lögreglan hafi sýnt ungum, viðkvæmum konum „fyrirlitningu“ og jafnvel sakað þær um afbrot en látið ofsækjendur þeirra afskiptalausa. Vísbendingar eru um að lögreglumenn hafi stundum talið að um eðlilega hegðun væri að ræða hjá fólki af pakistönskum uppruna. Dæmi er um að lögreglan hafi lýst nauðgun 11 ára barns sem kynmökum „með samþykki beggja“. Nauðgararnir fengu í mesta lagi viðvörun.

Um 3% íbúa Rotherham rekja ættir sínar til Pakistan eða Kasmír. Sumir heimildarmenn úr röðum þeirra segja að frammámenn í samfélagi þeirra, klerkar og aðrir, hafi árum saman vitað um ofbeldið en ekki kært það til lögreglu. Þingmaðurinn Ahmed lávarður er frá borginni og hann segir að klerkarnir og leiðtogar samfélags múslíma verði að gera það sem þeir hafi gert í moskunum þegar hann var ungur: kenna ungu fólki góða siði og virðingu fyrir öðru fólki. Þá hafi fólk skammast sín ef lögreglan hafi þurft að hafa afskipti af einhverjum úr þeirra röðum.

„Meirihluti breskra Pakistana er milli tveggja elda, annars vegar glæpamanna sem valda þessum vandamálum og hins vegar nokkurra hundraða manna sem tengjast hryðjuverkum og annarri glæpastarfsemi,“ segir Ahmed lávarður.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert