Ólétt kona skotin til bana

Milagro G. Canjura
Milagro G. Canjura Daily Mail

Lögreglan í Bay Shore, New York fylki í Bandaríkjunum, fann ólétta konu, Milagro G. Canjura, látna í bíl sínum á laugardagskvöld. Konan hafði verið skotin nokkrum sinnum, en hvorki hún né ófætt barn hennar lifðu af. Þetta kemur fram á fréttaveitunni New York Times.

Lögreglan brást fljótt við þegar byssuskot heyrðust frá Bay Shore á Long Island, og fannst Canjura meðvitundarlaus í bíl sínum af gerðinni Toyota Camry, rétt hjá heimili sínu stuttu síðar. Hún var flutt með sjúkrabíl á sjúkrahús þar sem bæði hún og fóstrið voru úrskurðuð látin. Ekki er vitað hversu langt hún var komin á meðgöngunni.

Enginn hefur verið handtekinn í tengslum við málið ennþá, og segir lögreglan engan vera grunaðan.

Mimi Ramirez, æskuvinkona Canjura, segist ekki hafa hugmynd um það hvers vegna einhver skyldi drepa vinkonu sína. Hún segir Canjura hafa verið hamingjusama, lífsglaða og spennta fyrir móðurhlutverkinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert