Fjórir afhöfðaðir með sverði

Dauðarefsing liggur við brotum á borð við nauðgun, morði, vopnað …
Dauðarefsing liggur við brotum á borð við nauðgun, morði, vopnað ráni eða eiturlyfjasmygli í furstadæminu. AFP

Þrír Sýrlendingar og einn Írani, sem fundnir voru sekir um eiturlyfjasmygl, voru afhöfðaðir með sverði í Sádi-Arabíu í dag. Þrír þeirra voru handteknir með mikið magn amfetamíns í fórum sínum en fjórði með hass. 

45 manns hafa verið hálshöggnir í Sádi-Arabíu á þessu ári. Mannréttindasamtök hafa vakið athygli á málinu en á tímabilinu 4. ágúst til 20. ágúst sl. voru 19 menn afhöfðaðir.

Dauðarefsing liggur við brotum á borð við nauðgun, morð, vopnað rán og eiturlyfjasmygl í konungsríkinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert