Taka mögulega þátt í árásum

Bandaríski hershöfðinginn Martin Dempsey segir að það komi til álita að bandarískir hernaðarráðgjafar veiti íraska hernum liðsinni í árásum sem verði gerðar á liðsmenn samtakanna Ríki íslam. 

Bandarísk stjórnvöld hafa ákveðið að senda mörg hundruð hernaðarráðgjafa til viðbótar til Íraks í tengslum við hernaðaráætlun sem beinist gegn samtökunum, sem Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, greindi frá í síðustu viku. Þetta kemur fram á vef BBC.

Fyrr í dag gerði Bandaríkjaher sína fyrstu loftárás samkvæmt áætluninni, en markmið hennar er að gera út af við Ríki íslam. Liðsmenn samtakanna hafa náð stórum svæðum í Írak og í Sýrlandi á sitt vald, en þeir vilja setja á fót sérstakt kalífadæmi. 

Dempsey segir að bandarísku hernaðarráðgjafarnir muni aðstoða Íraksher við að skipuleggja árásir á samtökin. Dempsey upplýsti um þetta er hann svaraði spurningum varnarmálanefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings. 

Chuck Hagel, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sat einnig fyrir svörum. Hann sagði að Bandaríkin stæðu í stríði við Ríki íslam og hryðjuverkasamtökin al-Qaeda. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert