Myrti 9 vikna dóttur sína

Litla stúlkan var meðal annars með bitför á höfðinu.
Litla stúlkan var meðal annars með bitför á höfðinu. Wikipedia

Ungur faðir sem hristi og barði dóttur sína til dauða hefur viðurkenndi morðið fyrir dómi. Maðurinn, sem er frá Litháan og er 23 ára gamall, hafði áður neitað að hafa drepið níu vikna dóttur sína þann 5. september á síðasta ári.

Móðir barnsins sneri aftur til vinnu þennan dag eftir fæðingarorlof. Þegar hún kom heim var barnið látið í barnarúmi á heimilinu.

Áverkar stúlkunnar voru alvarlegir, líkt og hún hefði lent í alvarlegu bílslysi eða hent fram af byggingu. Meðal áverkanna voru tvö bitför á höfði stúlkunnar, en þau voru eftir föðurinn.

Ungi faðirinn sagði áður að stúlkan hefði dottið fram úr rúminu en hefur nú játað morðið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert