Lögregla vill vita meira um manninn

600 lögreglumenn hafa leitað að Gross síðustu vikur.
600 lögreglumenn hafa leitað að Gross síðustu vikur. Wikipedia

Lögregla í Bretlandi hefur nú formlega óskað eftir gögnum um Arnis Zalkaln, 41 ára karlmann frá Lettlandi vegna rannsóknar á hvarfi hinnar 14 ára gömlu Alice Gross. Ekkert hefur sést til hennar í rúmlega þrjár vikur, eða frá 28. ágúst sl.

Síðast sást til henn­ar á ör­ygg­is­mynda­vél­um við skipa­sk­urð ná­lægt Brent­ford Lock á leið frá ánni Thames. Myndir úr öryggismyndavélinni sýna Zalkaln hjóla sömu leið á svipuðum tíma og telur lögregla því víst að hann hafi séð stúlkuna þennan dag.

Réttarmeinafræðingar hafa leitað í húsi og garði Zalkalns síðustu daga í von um að finna vísbendingar um hvarf Gross.

Maður­inn hef­ur ekki notað banka­reikn­ing sinn eða farsíma frá 3. sept­em­ber sl. Þá hef­ur hann ekki komið heim, en hann á kær­ustu og barn. Hann skildi vega­bréf sitt eft­ir heima.

Ekki komið með flugvél til Lettlands

Að sögn lögreglu í Lettlandi hefur hann ekki komið til landsins með flugvél síðustu daga. Aftur á móti er hugsanlegt að hann hafi komið til landsins með bíl eða lest.

Maður­inn er 41 ár og frá Lett­landi. Hann hlaut dóm í heimalandi sínu seint á síðustu öld fyr­ir að myrða eig­in­konu sína og grafa hana í skógi. Arn­is Zalkaln afplánaði 8 ára dóm og flutti til Bret­lands árið 2007. Þá var hann einnig hand­tek­inn, grunaður um að hafa áreitt 14 ára stúlku. Hann var þó aldrei kærður.

600 lögreglumenn hafa leitað að Gross síðustu vikur. Leitarsvæðið er umfangsmikið en meðal annars hefur verið leitað í ám og skurðum.

Leita að manni vegna hvarfs stúlku

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert