Leita að kafbáti við Stokkhólm

Frá Stokkhólmi, höfuðborg Svíþjóðar.
Frá Stokkhólmi, höfuðborg Svíþjóðar. Wikipedia

Um tvö hundruð sænskir hermenn taka nú þátt í viðamikilli leit í skerjagarðinum undan Stokkhólmi en ábendingar bárust um óþekktan erlendan kafbát. Herinn segir upplýsingarnar um bátinn hafa borist eftir trúverðugum heimildum. Skip og þyrlur taka þátt í leitinni.

Ekki liggur fyrir nákvæm staðsetning leitarsvæðisins eða hvort leitað er að fleiri en einum kafbáti. Stjórnandi leitarinnar sagði þó í samtali við fjölmiðla að töluverð umferð væri um leitarsvæðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert