„Ég hrinti honum en þetta var slys“

Jordan Graham ásamt eiginmanni sínum Cody Johnson.
Jordan Graham ásamt eiginmanni sínum Cody Johnson. Sky-sjónvarpsstöðin

Kona frá Montana í Bandaríkjunum sem dæmd var fyrir að myrða eiginmann sinn með því að ýta honum fram af kletti, aðeins 8 dögum eftir að þau giftu sig, hefur áfrýjað dómnum.

Jor­d­an Linn Gra­ham, sem er 23 ára gömul, var í mars dæmd í 30 ára fang­elsi fyr­ir að hafa ýtt eig­in­manni sín­um fram af kletti í júlí í fyrra með þeim af­leiðing­um að hann lét lífið. 

Verjendur Graham hafa haldið því fram að saksóknarar hafi haldið sönnunargögnum fyrir sig til að sannfæra dóminn um það að Graham hafi skipulagt verknaðinn. Graham var fundin sek um morð af annarri gráðu, en dómari neitaði beiðni hennar um að taka játninguna til baka.

„Þetta gerðist skyndilega, ég vildi bara losna við hann frá mér,“ sagði Graham. „Mér líður ekki eins og ég hafi drepið hann; ég meina, ég hrinti honum en þetta var slys.

Hjóna­vígsl­an fór fram 29. júní í fyrra og strax í kjöl­far henn­ar viðraði Gra­ham efa­semd­ir sín­ar um gift­ing­una við fjöl­skyldu sína og vini. Hjóna­korn­in fóru engu að síður í göngu­ferð um Glacier-þjóðgarðinn í Mont­ana­ríki 7. júlí. Fyr­ir dómi viður­kenndi Gra­ham að hafa ýtt eig­in­manni sín­um, Cody Lee John­son, fram af kletta­brún. John­son féll 90 metra.

Lík manns­ins fannst ekki fyrr en 12. júlí en Gra­ham neitaði í upp­hafi að hafa komið að hvarfi hans og sagði hann hafa farið með fé­lög­um sín­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert