11 börn létust í loftárás

Börn í Sýrlandi hafa þurft að líða miklar þjáningar í …
Börn í Sýrlandi hafa þurft að líða miklar þjáningar í borgarastyrjöldinni í landinu. ABD DOUMANY

Ellefu börn létust í loftárásum sem sýrlenski herinn stóð fyrir í Homs-héraði í Sýrlandi í gær. 25 létust í árásinni, að því er mannréttindasamtök í Sýrlandi segja.

Sextán af þeim sem létust í loftárásum á borgina Talbisseh í gær tilheyrðu sömu fjölskyldunni.

Borgarastyrjöldin í Sýrlandi hefur nú staðið í á fjórða ár. Að mati UNICEF eru börn helmingur þeirra sem þjást og mikill meirihluti barna sem flúið hafa yfir til nágrannaríkjanna er tíu ára eða yngri. Börn í Sýrlandi hafa upplifað gríðarlegt umrót og ólýsanlega skelfingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert