Svisslendingur í gönguferð lét yfirvöld vita af asna sem væri fastur ofan í holræsi í bænum Pratteln í norðurhluta landsins.
Maðurinn, Urs Meyer, segist hafa komið auga á asnann en aðeins höfuð hans hafi staðið upp úr holræsinu. Slökkviliðið kom á svæðið og tóku björgunaraðgerðir yfir klukkutíma. Asninn var við góða heilsu en þreyttur.