Fjölskylda lést á leið til Disney World

AFP

Hjón sem voru á leið með börn sín sex í draumaferðalag til Disney World á Flórída létust og þrjú barnanna er bíll þeirra valt. 

Fjölskyldan var á leið frá Louisiana. Hún hafði verið á ferðinni í um þrjár stundir er bíllinn fór út af hraðbrautinni og valt. Hjónin létust og þrjú barna þeirra.

Í frétt Fox-fréttastofunnar segir að lögreglan telji að sextán ára sonur hjónanna hafi sofnað undir stýri. Hann og tvö önnur börn hjónanna lifðu slysið af en eru í lífshættu. 

Foreldrarnir voru grunnskólakennarar. Tveir synir þeirra, 15 ára og sjö ára, létust í slysinu sem og fjögurra ára dóttir þeirra. Ekkert þeirra var með bílbelti.

Frétt Fox.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert