Sex látnir í Glasgow

Frá vettvangi við Millenium hótelið.
Frá vettvangi við Millenium hótelið. Skjáskot af Sky

Ruslabíll ók inn í hóp fólks í Glasgow í Skotlandi með þeim afleiðingum að sex manns létust. Slysið varð við Millenium-hótelið í miðborginni.

Margir slösuðust, samkvæmt frétt Sky-fréttastofunnar. Í fréttinni kemur fram að fólkið hafi verið að bíða eftir að komast yfir gangbraut. Fram kemur að fólk hafi kastast í um 15 metra upp í loftið er bíllinn ók á mannfjöldann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert