Henti telpu fram af brú

Lögreglubíll í Flórída.
Lögreglubíll í Flórída. Af Wikipedia

Fimm ára stúlka lést eftir að hafa verið hent fram af brú í Tampa Bay í Flórída. Lögreglan hefur einn í haldi vegna málsins. Hann er talinn vera faðir stúlkunnar.

Björgunarmenn reyndu að endurlífga stúlkuna. Hún var flutt á sjúkrahús þar sem hún lést í dag. 

Lögreglumaður sá mann henda stúlkunni ofan af brúnni er hann var á heimleið eftir vakt um miðnætti, segir í frétt AP-fréttastofunnar um málið. Að sögn talsmanns lögreglunnar sá lögreglumaðurinn bíl fara fram hjá sér, stoppa við brúna og henda barninu fram af. Síðan hafi maðurinn farið aftur inn í bíl sinn og ekið á brott. Lögreglan náði honum um hálftíma síðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert