Tveir menn létust í lögregluaðgerðum í Verviers í Belgíu í kvöld. Grunur lék á að mennirnir hugðust fremja hryðjuverk í Belgíu, en þeir komu frá Sýrlandi í síðustu viku.
Að sögn saksóknara særðist einn maður í aðgerðunum og er hann einnig grunaður aðild að skipulagningu hryðjuverka.
Saksóknarinn Eric Van der Sypt sagði í samtali við fjölmiðla í dag að mennirnir hefðu verið að undirbúa umfangsmikil hryðjuverk en gaf ekki frekari upplýsingar um hvað mennirnir hugðust gera. Hann segir hins vegar að ekki sé vitað til þess að mennirnir tengist byssumönnunum sem frömdu voðaverkin í París í síðustu viku
Lögregla gerði jafnframt tíu húsleitir í höfuðborginni Brussel og úthverfum hennar í kvöld.
„Hópur af um tíu einstaklingum, sumir nýkomnir frá Sýrlandi, var kominn langt á leið með að skipuleggja alvarlegar hryðjuverkaárásir í Belgíu,“ sagði Thierry Werts, frá skrifstofu ríkissaksóknara á blaðamannafundi í dag.
„Við leitina skutu ákveðnir aðilar strax á lögreglu með sjálfvirkum skotvopnum. Skutu þeir stanslaust í nokkrar mínútur. Tveir grunaðir létust og þriðji var handtekinn.“
Enginn úr röðum lögreglu særðist í aðgerðunum í Verviers. Borgin er í um 125 kílómetra fjarlægð frá Brussel og nálægt landamærum Belgíu og Þýskaland. Samkvæmt frétt AFP er stór hluti íbúa múslímar.
Í myndbandi sem sýnt hefur verið í belgísku sjónvarpi má heyra skothljóð og sprengingar í nokkrar mínútur. „Meira að segja þegar að einn hinna grunaða lá á jörðinni særður, hélt hann áfram að skjóta,“ sagði Wert í dag.
Vitað er um 325 einstaklinga sem hafa farið frá Belgíu til þess að berjast með Ríki íslams í Írak og Sýrlandi.