Stakk lögreglumann í höfuðið

AFP

Tvítugur breskur karlmaður var tekinn höndum í gærkvöldi í London eftir að hann réðist á lögreglumenn og stakk einn þeirra í höfuðið og öxlina. Lögreglumennirnir mættu heim til mannsins eftir að tilkynnt var um ofbeldisfullann mann þar sem væri vopnaður hnífi.

Fram kemur í frétt Daily Telegraph að lögreglumennirnir hafi reynt að ræða við manninn. Hann var þá með lítið barn í höndunum og lagði það niður áður en hann réðist að lögreglumönnunum. Lögreglumaðurinn sem varð fyrir hnífnum var fluttur á sjúkrahús en hefur verið útskrifaður. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert