Gefið sæði fyrir 350 milljónir

Þetta naut verður að láta sér nægja að dreyma um …
Þetta naut verður að láta sér nægja að dreyma um að ná sömu hæðum og 10177 Braut. Ljósmynd/Malín Brand

10177 Braut er ekkert venjulegt naut heldur margverðlaunað og nýverið var tekið úr því sæði í þúsundasta skiptið. Alls nemur verðmæti sæðisins 20,1 milljón norskra króna, eða sem nemur tæplega 350 milljónum íslenskra króna. 

Greint er frá málinu á vef Landssambands kúabænda.

Þar segir að norska ræktunarfélagið Geno veiti ár hvert útflutningsverðlaun félagsins, sem falli í skaut ræktenda þeirra nauta sem gefið hafa af sér mestu útflutningsverðmætin á undangengnu ári.

Þann 12. mars sl. féllu verðlaunin í skaut Torbjørg og Ommun Braut, sem eru ræktendur nautsins 10177 Braut. Nautið kom í heiminn á búi þeirra, Braut Samdrift, 23. ágúst 2002. Þetta í fimmta sinn sem þeim hlotnast verðlaun þessi fyrir nautið.

„10177 Braut er enn við bestu heilsu og var á dögunum tekið úr honum sæði í 1.000. skiptið í nautastöð Geno á Hallsteingård við Þrándheim.

Alls nemur verðmæti sæðisins úr honum 20,1 milljón norskra króna, eða sem nemur tæplega 350 milljónum íslenskra króna. Þar af nema útflutningsverðmætin 9,1 milljón norskra króna.

10177 Braut er ekki notaður í Noregi lengur, en er mjög eftirsóttur erlendis og hafa til að mynda verið seldir 73.000 skammtar úr honum í Hollandi einu. Þess utan er sæði úr honum á boðstólum víða um lönd, en í viku hverri eru teknir úr honum allt að 2.000 sæðisskammtar,“ segir í frétt á vef Landssambands kúabænda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert