Morðingi braust út úr fangelsi

AFP

Karlmaður sem nýlega var dæmdur fyrir morð og færður í varðhald í Illinois, yfirbugaði fangavörð í morgun, tók lykla hans og búning og náði að flýja út úr fangelsinu á bíl fangavarðarins. Lögreglan segir manninn vopnaðan og hættulegan. Hún býður hverjum þeim sem býr yfir upplýsingum um manninn, Kamron T. Taylor, sem er 23 ára, 1000 dollara að launum.

Atvikið átti sér stað í Kankakee í Illinois, um 100  km frá Chicago. Í bænum búa um 27 þúsund manns.

Í febrúar sakfelldi kviðdómur Taylor fyrir morð. Er dómurinn var kveðinn upp reyndi hann að hlaupa út úr réttarsalnum. Þá höfðu fangaverðir betur og náðu að yfirbuga hann, segir í frétt CNN.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert