Franska lögrgelan fann í dag lík konu sem talið er vera af áttræðri breskri konu sem leitað hefur verið að. Líkið fannst illa farið í tveimur pörtum á tveimur mismunandi stöðum í Suður-Frakklandi þar sem hún bjó samkvæmt frétt AFP.
Konan, Violet Price, skilaði sér ekki heim til sín í þorpið Moustier á laugardaginn. Sonur hennar tilkynnti hvarf hennar til lögreglu. Hann hafði þá farið heim til hennar eftir að hún hafði ekki svarað í síma. Hafin var leit að Price og tóku 70 lögreglumenn þátt í leitinni auk þyrlu og kafara en án árangurs. Engin skýring fékkst á hvarfi hennar.
Einn er í haldi vegna málsins, karlmaður um þrítugt, en hann benti lögreglu á líkið. Maðurinn var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir manndráp árið 2005 samkvæmt fréttinni en hann og Price þekktust. Þó ekki náið. Vitað var að maðurinn var sá síðasti til að sjá hana.