Fundu líkamsleifar Chelsea Bruck

Konan sást síðast á hrekkjavökunni í fyrra.
Konan sást síðast á hrekkjavökunni í fyrra. AFP

Líkamsleifar 22 ára konu sem sást síðast 31. október á síðasta ári í hrekkjavökupartíi í bænum Newport suðvestur af Detroit-ríki í Bandaríkjunum fundust á föstudag. Konan hét Chelsea Bruck.

Bruck var klædd í búning þegar hún hvarf en líkamsleifar hennar voru ekki í fötum þegar vinnumenn fundu hana í jarðvegi um 24 kílómetrum frá staðnum þar sem hún sást síðast. Talið er að hún hafi verið myrt en ekki er vitað hvað olli dauða hennar.

Umfangsmikil leit var gerð að Bruck eftir að hún hvarf. Vitni sagðist hafa séð hana í búningnum um klukkan þrjú um nóttina. Hún gekk í átt að bílastæði og var hún samferða karlmanni.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert