Ósáttur við brúðkaupið og drap sex

AFP

Serbneskur faðir sem ekki var sáttur við brúðkaup sonar síns skaut sex manns til bana eftir brúðkaupið, þar á meðal brúðina og foreldra hennar.

Brúðkaupið fór fram í bænum Kanjiza á laugardag og segir talsmaður serbneska innanríkisráðuneytisins að erfiðar fjölskylduaðstæður hafi legið á bak við morðin.

Samkvæmt fréttum þarlendra miðla hafði maðurinn, sem er 55 ára, verið að drekka stíft allan daginn eftir brúðkaupið og síðdegis í gær náði hann í veiðiriffilinn sinn og skaut sex til bana. Franskur gestur í brúðkaupinu, en eiginkona hans særðist í árásinni, náði að skjóta byssumanninn til bana. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert