Skaut sig óvart þegar hún tók „selfie“

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. AFP

Ung rússnesk kona skaut sig óvart í höfuðið þegar hún var taka svokallaða selfie-mynd á farsímann sinn.

Að sögn rússneskra fjölmiðla fann konan skammbyssu sem öryggisvörður hafði skilið eftir á vinnustað sínum í Moskvu, höfuðborg Rússlands. Ákvað hún að taka mynd af sjálfri sér þar sem hún mundaði byssuna, en ekki vildi betur til en að skot hljóp af þegar hún beindi byssunni að enni sínu.

Atvikið átti sér stað í gær, fimmtudag. Nærstaddir heyrðu skothvell og hringdu umsvifalaust í neyðarlínuna. Var konan flutt á spítala en ástand hennar er talið alvarlegt, að því er fram kemur í frétt AFP.

Öryggisvörðurinn hafði skilið byssuna eftir á skrifstofunni þegar hann fór í sumarfrí fyrir tveimur vikum, að sögn lögreglunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert