Írland er gjörbreytt eftir að þjóðin kaus að lögleiða hjónabönd samkynhneigðra. Úrslitin voru ljós á laugardag og fátt er nú um annað talað í landinu.
Írsk dagblöð segja að allt sé nú gjörbreytt. Þjóðin hafi stigið út úr skugga valdamikillar kaþólskrar kirkju er hún kaus með hjónaböndum samkynhneigðra.