Herflugvél hrapaði á íbúðarhverfi

AFP

Að minnsta kosti fimm eru látnir eftir að herflutningavél hrapaði stuttu eftir flugtak og lenti á íbúðarhverfi í borginni Medan í Indónesíu. Vélin lenti á tveimur húsum og bíl áður en kviknaði í henni.

Stór hópur björgunarmanna, lögreglumanna og slökkviliðs var mættur á svæðið stuttu eftir að vélin hrapaði. Þykkan svartan reyk leggur frá svæðinu og mörg hús í kring eru skemmd samkvæmt AFP-fréttaveitunni.

Að sögn vitna var vélin óstöðug um leið og hún tókst á loft og fljótlega fór reyk að leggja frá henni. Vélin hafði aðeins verið á lofti í um tvær mínútur, og flogið fimm kílómetra, þegar hún hrapaði.

Samkvæmt upplýsingum frá hernum voru tólf um borð í vélinni þegar hún hrapaði. Að sögn lögreglu hafa fimm lík fundist, en björgunarsveitir leita nú fleiri líka. Samkvæmt fjölmiðlum í Indónesíu samanstóð áhöfnin af þremur flugmönnum, einum siglingafræðingi og átta tæknimönnum.

Hverfið sem vélin lenti á er nýlega byggt og ekki er vitað hvort íbúar hafi verið í húsunum.

Uppfært 8:00:

Tala látinna fer hækkandi, en að minnsta kosti tuttugu lík hafa nú fundist á svæðinu. Björgunarmenn eru við störf á staðnum og óttast er að enn fleiri lík finnist.

Uppfært 9:00:

Samkvæmt upplýsingum frá Rauða krossinum er tala látinna nú 38. Þar af er eitt barn.

AFP
AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert