Sex börn drukknuðu eftir að bát sem var að flytja þau í skólann hvolfdi í skipaskurði í Lagos i Nígeríu á miðvikudaginn. Talsmaður neyðarþjónustu landsins greindi frá þessu í gær.
Fjórtán börn voru í bátnum þegar honum hvolfdi. Átta þeirra var bjargað. Þrjú lík fundust sama dag og slysið varð en þrjú í gær.
Fjölmargir íbúar á eyjum á svæðinu notast við báta til þess að komast til skóla og vinnu. Nýlega bentu yfirvöld notendum báta á svæðinu á að fara varlega vegna aukins vatnsmagns í ám og skipaskurðum en rigningatímabil gengur nú yfir svæðið.