Setur heimsmet í lengsta flugi

Solar Impluse 2.
Solar Impluse 2. AFP

Svisslendingurinn André Borsch­berg hefur nú sett heimsmet í flugi sólarorkuknúinnar flugvélar, en hann hefur flogið stanslaust í um 109 klukkustundir. Borschberg flýgur sólarorkuknúnu flugvélinni Solar Impulse 2 yfir Kyrrahafið, en hann lagði af stað frá Nagoya í Japan á sunnudag og áætlað er að hann lendi í Honolulu á Havaí í dag.

Um er að ræða lengsta legg­­inn í för vél­ar­inn­ar í kring­um jörðina, en Borsch­berg er einn um borð í vélinni. Hann hefur sagt frá upplifun sinni af fluginu á Twitter, en þar segist hann meðal annars hafa þurft að fljúga í erfiðum skilyrðum. Þá taki það mjög á að fljúga allan þennan tíma, en hann getur ekki sofið nema í um 15 mínútur í senn.

Aldrei fyrr hefur flugmaður verið jafnlengi á lofti í einum legg, en fyrra heimsmetið átti Steve Fossett sem flaug í 76 klukkustundir og 45 mínútur árið 2006. Þá hefur flugvél aldrei fyrr verið flogið yfir Kyrrahafið í einni lotu, en ríflega átta þúsund kílómetrar eru á milli áfangastaðanna tveggja, án möguleika til millilendingar.

Borsch­berg hefur þó fallhlíf og björgunarbát með í för ef allt fer á versta veg, en hann fór í gegnum stífan undirbúning í Norðursjó fyrr á árinu.

Áætlað er að flugið taki fimm sól­ar­hringa í heild­ og því gert ráð fyrir að Borsch­berg lendi í Honolulu eftir um sjö klukkustundir. 

Slæmt veður hef­ur tafið flug vél­ar­inn­ar í tæpa tvo mánuði. Lagt var af stað frá Abu Dhabi hinn 9. mars sl. og áætlað er að hnatt­flugi vél­ar­inn­ar ljúki í lok júlí eða byrj­un ág­úst á sama stað.

Flug­leiðin er eft­ir­far­andi: Abu Dhabi - Múskat í Óman - Ah­meda­bad í Indlandi - Mandalay í Myan­mar - Chongq­ing í Kína - Nanj­ing í Kína - Honolulu á Havaí - Phoen­ix í Banda­ríkj­un­um - óákveðinn áfangastaður í miðríkj­um Banda­ríkj­anna (fer eft­ir veðri) - New York í Banda­ríkj­unum - óákveðinn áfangastaður í Suður-Evr­ópu eða Norður-Afr­íku - Abu Dhabi.

Feðgarn­ir Jón Björg­vins­son, frétta­rit­ari og ljós­mynd­ari, og son­ur hans, Daní­el Jóns­son raf­magns­verk­fræðing­ur, taka þátt í æv­in­týr­inu en ef það tekst verður flug­vél­in sú fyrsta sem flýgur í kring­um hnött­inn ein­ung­is knú­in af sól­ar­orku.

Hægt er að fylgj­ast með ferðalag­inu og beinni út­send­ingu úr flug­stjórn­ar­klef­an­um.

Andre Borschberg.
Andre Borschberg. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert