Skotárás í norður Lundúnum

Frá vettvangi árásarinnar.
Frá vettvangi árásarinnar. Af Twitter

Maður lést og kona hefur verið flutt á sjúkrahús eftir skotárás nálægt Wood Green lestarstöðinni í Norður-Lundúnum. Samkvæmt frétt The London Evening Standard var lögregla kölluð til rétt fyrir klukkan sex í kvöld.

Fyrst greindi talsmaður lögreglu frá því að sjúkraliðar væru að hjúkra tveimur fórnarlömbum á staðnum. Síðar staðfesti lögregla að annað fórnarlambanna hefði látið lífið.

Samkvæmt frétt Sky News var fólkið skotið úti á götu. Maðurinn lést um klukkan 19 að staðartíma, fyrir rúmri klukkustund. 

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hefur enginn verið handtekinn í tengslum við málið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert