„Hvers vegna þarftu að skjóta ljón?“

Mynd sem Kimmel birti af tannlækninum.
Mynd sem Kimmel birti af tannlækninum. Skjáskot úr myndbandinu.

Grínistinn Jimmy Kimmel var óvæginn í garð tannlæknisins Walter Palmer. Hann lýsir því meðal annars hvernig leiðsögumenn hans hafi lokkað ljónið Cecil út af verndarsvæðinu og bókstaflega varpað á það ljósi með kastara. Palmer skaut ljónið með ör, sem felldi það ekki heldur særði það illa.

Mennirnir reyndu til að mynda að eyðileggja GPS tækið sem var á ljóninu. Í myndbandinu hér að neðan má sjá hvernig Kimmel fer yfir málið, en hann er augljóslega mjög ósáttur við manninn sem drap Cecil.

Frétt mbl.is: Stjörnurnar tjá sig um drápið á Cecil

<iframe allowfullscreen="" frameborder="0" height="360" src="https://www.youtube.com/embed/_LzXpE1mjqA" width="640"></iframe><div id="embedded-remove"> </div>
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert