18 ára ákærð fyrir morð

Brooklyn brúin.
Brooklyn brúin. AFP

Tiona Rodriguez, 18 ára Brooklynbúi, var ákærð fyrir fyrir morð á nýfæddum syni sínum nærri tveimur árum eftir að hann fannst látinn í poka við undirfataverslun í New York.

Lík barnsins fannst þegar starfsfólk verslunarinnar grunaði hana um þjófnað úr versluninni og spurði hana út í það. Lögregla sagði AFP fréttastofunni þegar málið kom upp að tvær 17 ára stelpur hefðu verið teknar afsíðis og spurðar út í meintan þjófnað í Victoria’s Secret verslun við Herald torg.

Það var þá sem líkið fannst. Lögreglan í New York upplýsti síðar um að barnið hafi dáið vegna köfnunar. „Ég er sannfærður um að saksóknarar embættisins munu sjá til þess að réttlætið nái fram að ganga í þessu hræðilega máli,“ segir Cyrus Vance, saksóknari í New York.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert