Tala látinna í Bangkok hækkar

Sjúkraliðar færa slasaða konu á sjúkrahús eftir árásina.
Sjúkraliðar færa slasaða konu á sjúkrahús eftir árásina. AFP

Tala látinna eftir sprengjuárásina í Bangkok í dag fer hækkandi, en að sögn lögreglu eru að minnsta kosti 16 látnir. Þá eru yfir 80 slasaðir samkvæmt upplýsingum frá sjúkrahúsi á svæðinu. 

Að sögn varnarmálaráðherra Taílands var skotmark árásarmanna ferðamenn, en að minnsta kosti tveir ferðamenn; frá Kína og Filippseyjum, eru á meðal látinna. 

Sjá einnig: Ferðamenn voru skotmarkið

Sjá einnig: Öflug spreng­ing í Bang­kok

Sprengjunni var komið fyrir í mótorhjóli fyrir framan Erawan hofið, en hún sprakk um klukkan 19 að staðartíma. Þúsund­ir heim­sækja Eraw­an hofið á degi hverj­um, en þar er meðal ann­ars að finna stytt­una Phra Phrom af gyðjunni Bra­hma. Rúm 95% þeirra 67 millljón manns sem í landinu búa eru búddistar en aðrir eru ýmist múslimar eða hindúar. 

Sam­kvæmt frétt­um AFP frétta­veit­unn­ar voru lík­ams­hlut­ar á víð og dreif á torgi fyr­ir fram­an hofið eft­ir spreng­ing­una. Torgið hefur stundum verið nýtt til mótmæla í landinu, en þar hefur mikill óróleiki ríkt undanfarin ár. Landinu hefur verið stýrt af hernum frá því í maí í fyrra, en hann tók stjórnina eftir að mótmæli höfðu staðið mánuðum saman.

Eins og sjá má á mynd sem AFP fréttastofan deildi á Twitter-síðu sína er torgið skammt frá þinghúsinu. Nær­liggj­andi svæði hafa verið rýmd en fregn­ir herma að fleiri sprengj­ur séu á staðnum. Samkvæmt taílenskum fjölmiðlum hefur önnur sprengja fundist á svæðinu og unnið er að því að aftengja hana. 

Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni, en talið er líklegt að múslimar í suðurhluta landsins standi að baki henni.

Búið er að rýma svæðið.
Búið er að rýma svæðið. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert