Hverjir taka við flestum hælisumsóknum?

Heldarfjöldi umsókna.
Heldarfjöldi umsókna. Skjáskot af vef NYT.

Á vef New York Times er að finna áhugaverða og myndræna skýringu á því hvaða Evrópusambandslöndum berast flestar umsóknir um hæli.

Fréttaskýring New York Times

Umsóknir miðað við höfðatölu.
Umsóknir miðað við höfðatölu. Skjáskot af vef NYT.

Gröfin sýna tölur allt frá árinu 2011, þar sem fjöldi umsókna um hæli er bæði sýndur í hráum fjöldatölum og í samhengi við fjölda íbúa í hverju landi.

Eins og sést greinilega hefur Þýskalandi borist langflestar hælisumsóknir. Þegar horft er til fjölda íbúa í landinu fyrir sést hins vegar að Ungverjaland, Svíþjóð og Svartfjallaland eru meðal þeirra landa sem berast hlutfallslega flestar umsóknir.

Þann 1. janúar 2015 bjuggu 329.100 á Íslandi samkvæmt tölum hagstofu Íslands. Ef Íslandi hefðu borist hlutfallslega jafnmargar umsóknir um hæli á árunum sem horft er til og Þýskalandi hefðu hingað borist 2.225 umsóknir um hæli.

Væri hlutfallið það sama og í Svíþjóð hefðu hingað borist 7.763 umsóknir á sama tíma en aðeins 148 væri miðað við Spán.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert