45 myrtir á 31 degi

Skjáskot af vef Baltimore Sun

Fjöldi morða í Baltimore í Mayland hefur aukist mikið það sem af er ári. Nú þegar hafa fleiri en 200 verið drepnir í borginni. Júlí hefur hingað til verið blóðugasti mánuðurinn í borginni það sem af er ári, en þá voru 45 myrtir á einum mánuði.

Baltimore Sun hefur tekið saman upplýsingar um einstaklingana 45 sem voru myrtir í borginni. Þar á meðal er eins árs barn sem kafnaði, 53 ára gömul amma sem var skotin til bana og 22 ára starfmaður Wal-Mart. Af þeim 45 sem voru myrtir voru 43 blökkumenn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert